Póstlistinn er kominn í loftið!

Póstlistinn er kominn í loftið!

Fáðu nýjustu rabarbarafréttirnar beint í pósthólfið

Póstlisti Rabarbarahátíðarinnar á Blönduósi er nú formlega kominn í loftið og við hvetrjum alla til að skrá sig til að fá sendar nýjustu fréttir, dagskrártilkynningar, viðburðayfirlit og innsýn bakvið tjöldin!

Hvort sem þú ert fastagestur, áhugasamur þátttakandi, eða einfaldlega forvitin(n) um hvað rabarbarinn getur gert fyrir þig , þá er þetta besta leiðin til að vera í sambandi við hátíðina.

Hvað færðu með skráningu?

  • Upplýsingar um viðburði, markaði og uppákomur
  • Tækifæri til að taka skrá þig á vinnustofur, göngur, hjólaferðir og námskeið
  • Skemmtilegar upplýsingar og uppskriftir um hetju hátíðarinnar, rabarbarann!

Skráðu þig – það tekur bara augnablik!

Þú finnur skráningarformið hér á heimasíðunni, neðst á forsíðunni og einnig undir „Hafa samband“. Við sendum ekki oft – bara þegar eitthvað spennandi er í vændum. Og við lofum: ekkert rabarbaraspam!

Til baka á bloggið