
Póstlisti sem bragðast vel!
Með því að skrá þig á póstlistann færðu að vita allt fyrst!
Smelltu þér á hann svo þú missir ekki af neinu!

Rabarbarahátíð?
27. júní kl. 9:00-23:00 í Gamla bænum á Blöndósi fögnum við Rababaranum í allri sinni dýrð. Það verða tónlistaratriði, sölubásar frá smáframleiðendum, fræðslu-og skemmtigöngur, listasmiðjur, gestakokkur að störfum og hjólaferð (samhjól) svo eitthvað sé nefnt.
Hvað kostar?
Frítt er inn á svæðið og á alla viðburði. En ýmislegt góðgæti verður til sölu.


Sölu og kynningarborð í Krúttinu
Smáframleiðendur eru hvattir til að koma og kynna sínar vörur hvort sem þær innihalda rabarbara eða ekki.
Rabarbararæktendur sérstaklega velkomnir með sínar afurðir.
Nýjustu fréttir
-
Matar- og drykkjarslóð á rabarbarahátíð
Á rabarbarahátíð fær maður aldrei nóg af rabarbara og því eru allir veitingastaðir, kaffihús og barir á Norðurlandi vestra hvattir til að taka þátt í rabarbararuglinu með okkur með því að setja rabarbara í rétti og drykki helgina 26.-28.júní. Þeir sem hafa áhuga geta skráð sig hér á þennan link: Rabarbaramatar- og drykkjarslóð 2026 –…
-
Hjólað saman á rabarbarahátíð
Á Rabarbarahátíð verður boðið upp á notalegt og skemmtilegt samhjól frá gamla bænum á Blönduósi í kringum hið fallega Svínavatn. Samhjól (enska-social ride) er hjólaviðburður sem er öllum ókeypis og snýst um að hjóla saman ákveðna skilgreinda leið með það að markmiði að öllum líði vel og að það sé gaman. Hjólað verður saman frá…
