Rabarbarahátíð?

27. júní kl. 11:00-23:00 í Gamla bænum á Blöndósi fögnum við Rababaranum í allri sinni dýrð. Það verða tónlistaratriði, sölubásar frá smáframleiðendum, fræðslu-og skemmtigöngur, listasmiðjur fyrir börn og fullorðna, uppskriftakeppni, gestakokkur að störfum og hjólaferð svo eitthvað sé nefnt. 

Hvað kostar?

Frítt er inn á svæðið og á alla viðburði. En ýmislegt góðgæti verður til sölu. Þátttaka á sölu- og sýningarbásum kostar 7.000.- kr. hvert borð.

Stuð fyrir alla fjölskylduna

Við leggjum áherslu á að allir skemmti sér vel á rabarbarahátíðinni og sjáum til þess að allir finni eitthvað fyrir sitt hæfi, hvort sem það eru námskeið, útivera, hjólaferð, söguganga eða skemmtilegir útileikir — allir eiga að hafa það gaman!

Nýjustu fréttir

  • Dagsetningar 2026

    Dagsetningar 2026

    Rabarbarahátíðin mun snúa aftur sterkari en nokkru sinni fyrr með skemmtun fyrir alla fjölskylduna, sölubásum og kynninugum í gamla bænum á blönduósi 27. júní 2026 Við hlökkum til að sjá ykkur og ekki gleyma að skrá ykkur á póstlistann til að fylgjast með!

  • Nýtt viðtal!

    Nýtt viðtal!

    Nú fer heldur betur að styttast í hátíðina og um að gera að kynna sér rabarbarann enn betur með því að hlusta á þetta skemmtilega viðtal við hana Björk okkar þegar hún kom fram í hinum bráðskemmtilega þætti „Segðu mér“ með Sigurlaugu M. Jónasdóttur. Hægt er að hlusta á þáttinn með því að smella hér!