Saga rabarbarahátíðar á Blönduósi

Rabarbarahátíð í gamla bænum á Blönduósi er haldin til þess að vekja athygli á sögu og nytjum rabarbarans bæði hér á landi sem og erlendis. Á sama tíma viljum við upphefja rabarbarann sem var afar mikilvæg nytja planta hér á landi frá lokum 19. aldar fram að lokum 20. aldarinnar en hann hefur nú því miður vikið fyrir innfluttum vörum. Rabarbari er flokkaður sem fjölært grænmeti, en afar fáar grænmetistegundir eru fjölærar.

Hátíðin var fyrst haldin sumarið 2024 sem tilraunaverkefni sem kom vel út, fékk góðar viðtökur og jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum. Við teljum því að þetta sé hátíð sem er komin til að vera og vaxa ár frá ári.


Athugasemdir

Færðu inn athugasemd