Rabarbarasafnið

Þegar Rabarbarafélagið var stofnað árið 2025, hafði Nína Rós Ísberg samband við stjórn Rabarafélagsins, því eiginmaður hennar Samson Bjarnar hafði fengið þá hugmynd að félagið myndi safna yrkjum af rabarbara sem yrðu sett niður á Blönduósi, en Nína Rós er gamall Blönduósingur. Hún ásamt eiginmanni sínum Samson Bjarnar hafði milligöngu um það að félagið fékk sjö yrki frá Grasagarðinum í Reykjavík en þar er stærsta safn rabarbara yrkja á Íslandi. 

Rabarbarasafnið á Blönduósi er í gamla bænum, á horni Hnjúkabyggðar og Koppagötu. 

Þar er að finna eftirfarandi yrki: “Mývetningur”, “Ráðherrafrú”, “Svínafell” “Skrúður” “Early Red” “Schierbeck” og “Hveravellir.”

Fyrstu plönturnar voru settar þar niður þann 24. maí 2025 af Björk Bjarnadóttur. 

Það er um 20 yrki af rabarbara til á Íslandi, og þeim fer fjölgandi eftir því sem garðyrkjustöðvarnar flyta inn fleiri yrki. Það er talið að “Queen Victoria” sé hvað algengast hér um land, en það er stórvaxið með græna stöngla og gefur mikla uppskeru. Annað yrki heitir “Linneus” og það sem flestir sækjast eftir hér á landi er Vín rabarbari, sem er rauður í gegn og heitir á ensku “Early Red”, hann er smávaxnari en “Victoria” og sætari.

Það var Óli Valur Hansson (1922-2015) garðyrkjuráðunautur sem ferðaðist um landið í lok níunda áratugar seinustu aldar sem safnaði yrkjum af rabarbara ásamt því að skrá niður nöfn þeirra. Nöfn yrkjanna tengjast oft fundarstað þeirra eða eigendum rabarbara garðsins. Safn þetta fór í Grasagarðinn í Reykjavík árið 2000

Vitað er um rabarbara garð í Englandi sem inniheldur um það bil 400 yrki. Rabarbari er stórkostlegt fjölært grænmeti sem allir ættu að hafa í garðinum sínum, og nýta til hins ýtrasta. Alla hluta plöntunnar er hægt að nýta: laufin er hægt að nýta í skordýraeitur og ef þau eru ekki nýtt er best að setja þau í rabarbara garðinn, þá eru þau lögð ofan á krónuna sem leggirnir koma upp úr, laufin halda frá grasi og einnig færa þau næringu aftur í garðinn, stöngulinn er hægt að nýta í: grauta, súpur, brauð, kökur, sultur, saft og vín. Fótinn eða peruna sem er neðsti hlutinn á leggnum og er hvítur, er hægt að nýta í góðan eftirrrétt sem nefnist rabarbaraperur, og að okkur vitandi býður ekki nokkur veitingastaður á Íslandi upp á þennan stórkostlega eftirrétt. Rótina sem er gul á litinn og mikill massi er hægt að nýta til að litunar á t.d. ull og silki. Einnig er hún mikil lækninga rót sem læknar hægðartregðu, en ekki er ráðlegt að nýta hana þannig nema með ráðlegginum frá grasalækni. Svo eru það blómstönglarnir, sem eru kölluð njóli og sagt er rabarbarinn hlaupi í njóla þegar blómstönglarnir birtast. Þeir eru holir að innan og þá er hægt er að þurrka og nýta t.d. til hljóðfæragerðar, hér má nefna: rabarbara flautur, rabarbara lúðra og rabarbara hrisstur. 

Vegir rabarbarans eru margir og sumir þeirra hafa ekki en verið farnir.