Rabarbara sprettur

Nýtt á Rabarbarahátíð í ár er Rabarbaraspretturinn, hlaup fyrir krakka á öllum aldri en veitt verða einstök rabarbaraverðlaun fyrir fyrsta sætið í flokki 6-7 ára (f. 2019-20), 8-9 ára (f. 2017-18) og 10-12 ára (f. 2014-16).

Hlaupaleiðin, rauðar pílur á kortinu (sjá mynd neðar), er um 440m (hringurinn á íþróttavellinum er 400m).

Hlaupið hefst við rauða X-ið (kl. 10:30) og þar verður einnig komið í mark.

Kort af hlaupaleið:

Rabarabaraspretturinn á að kveikja upp gamlar og (vonandi) góðar minningar þeirra sem eitt sinn tóku þátt í Vorsprettinum sem var fyrst hlaupinn árið 1973:

„Áfengisvarnarnefnd Blönduóss gekkst vorið 1973, í samvinnu við Umf. Hvöt, fyrir víðavangshlaupi, sem kallað var Vorspretturinn. Hlaupið var þrisvar sinnum og var þátttaka allgóð, einkum í yngri aldursflokkunum. Keppt var í 3 aldursflokkum stúlkna og 4 drengja.  Verðlaunastyttur voru veittar þeim, sem bestum árangri náðu í hverjum flokki að samanlögðu í öllum þrem hlaupunum. Þær eru farandgripir. Verðlaunapeninga hlutu þau, er best hlupu í hverjum árgangi. Þá voru viðurkenningarskjöl veitt eftir hvert hlaup. Verðlaunagripir voru gefnir af eftirtöldum aðilum: Áfengisvarnarnefnd Blönduóss; Búnaðarbanka Íslands, útibúi á Bl.; Fróða hf.; Kvenfélaginu Vöku; Lionsklúbbi Blönduóss; Pólarprjóni hf; Stíganda hf; Vísi s.f.“

(Heimild, ritið Húnavaka 1974)