Ljósmyndasamkeppni á Rabarbarahátíð

Ljósmyndakeppni Rabarbarahátíðarinnar – fyrir alla stóra sem smáa.

Þemað er einfalt: RABARBARI -með frjálsri aðferð.

Takið skemmtilegar, flottar, listrænar, fyndnar (o.s.frv.) myndir þar sem rabarbari kemur við sögu. Leyfið hugmyndafluginu fljúga hátt og ímyndunaraflinu að taka öll völd.

Gert er ráð fyrir að myndir séu teknar á síma til að sem flestir geti tekið þátt.

Myndir skal senda á rabarbarafestival@gmail.com eða koma við í Apótekarastofunni og skila þeim inn þar.

Bestu myndirnar verða prentaðar út í Apótekarastofunni og verða þar til sýnis.

Kl. 16 lýkur keppni og tekur þá dómnefnd til starfa sem velur skemmtilegustu myndirnar.