Hátíðin 2025

Önnur Rabarbarahátíðin, laugardaginn 28. júní 2025, fyrsta árið sem Rabarbarafélagið stóð að henni.

Um 600 manns komu við í Gamla bænum, og margir stöldruðu við allan daginn. Tónlistarfólk úr heimabyggð spilaði bæði inni í Krúttinu og á vörubílspalli úti.

Börnin fengu listasmiðju, listakonur buðu gestum að þrykkja á svuntur og poka, og Arfistinn sýndi tilraunir með rabarbara, meðal annars band úr leggjunum og lit úr rótinni. Fræðslugöngur Einars Þorleifssonar fuglafræðings, Guðmundar Helgasonar, Jóns Arasonar og Bjarkar Bjarnadóttur voru vel sóttar, og þátttaka í hjólaferðinni fór fram úr öllum vonum.

Gestakokkurinn Sólveig Vilhjálmsdóttir eldaði grænmetisrétt og nýstárlegar sultur, og um 30 lítrar af rabarbaragraut með rjóma hurfu fljótt. Uppskriftakeppnin var á sínum stað og um kvöldið héldu Gaukur, Orri og félagar tónleika í fullu Krúttinu.

Dagskráin 2025

Úti

10:00Samhjól: hjólað frá Koppagötu með Önnu Lindu og Jóni Þór, upp að Svínavatni og í kringum það (58 km)
10–14Hjólaverslunin Örninn með sýningarbás, hjólastillingar, reynsluakstur og ráðgjöf
14:00Ræktunarganga með Björk Bjarnadóttur um rabarbaragarða
14–17Leikir við Hillebrandtshús fyrir krakka
15:00Minningarganga: Snáðinn úr gamla bænum, eða nafla alheimsins, rifjar upp bernskuna
16:00Fuglaskoðun með Einari Þorleifssyni náttúrufræðingi
17:00Aðalgata 1 í eina og hálfa öld: Jón Arason rekur sögu hússins
18:00Draugaganga frá gömlu kirkjunni upp að Draugagili með Björk Bjarnadóttur umhverfisþjóðfræðingi

Ræktunarganga, minningarganga og fuglaskoðun hófust við rabarbarasafnið á mótum Koppagötu og Hnjúkabyggðar.

Krúttið við Koppagötu

11:00Sölubásar opna
11–12Tekið á móti afurðum í uppskriftakeppni
11–17Arfistinn sýnir afurðir tilraunasmiðju með rabarbara: pappír, pappa, garn, litunarefni og ætingarefni
12:00Opnunarathöfn: Björk Bjarnadóttir setur hátíðina. Nanna Rögnvaldardóttir flytur erindið Rabarbari um víða veröld
13:00Eldað með Sólveigu I: sýnikennsla í matargerð með rabarbara
14:00Úrslit í uppskriftakeppni, gestum boðið að smakka og skoða
15:00Eldað með Sólveigu II: nýjungar í sultugerð
17:00Eldað með Sólveigu III: eftirréttadásemdir rabarbarans
20:00Kvöldvaka með rabarbara-pubquiz í boði Hret víngerðar
21:30Dúettinn Tuff: Orri og Gaukur, leikmenn Hvatar nr. 7 og 8, taka lagið

Útisvið í vörubíl

14:00Sigrún Erla Snorradóttir
14:30Skarphéðinn Einarsson, Björn Pétursson og Benedikt Jóhannsson
15:00Friðrik Halldór og Gunnar Ingi
15:45Línudans
16:30Skandall

Tónlistarfólk úr héraði. Tekið var á móti hjólafólki úr Samhjóli.

Hillebrandtshús og tjald

14–17Listasmiðjur fyrir börn á öllum aldri, leikir og reglulegar ferðir út í rabarbarabeð að hnupla rabarbara og dýfa í sykur
11–17Rabarbaraprentvinnustofa í tjaldi með Sigríði Melrós og Björgu Vilhjálmsdóttur

Sjá allar myndir frá 2025 →