Til eru yfir 70 rabarbarategundir í heiminum.
Algengastur hér á landi
Victoria
Líklega algengasta yrkið á Íslandi. Schierbeck landlæknir mælti með því árið 1891 og sagði blaðleggina geta orðið allt að 2 pund að þyngd hér á landi. Hafið að minnsta kosti eina og hálfa alin á milli plantna.
Sá vinsælasti
Vínrabarbari
Ber einnig heitið Early Red. Þetta er rabarbarinn sem allir vilja eiga.
Frá 1891
Linnæus
Hitt yrkið sem Schierbeck kynnti í Garðyrkjukveri sínu og er enn ræktað í dag. Hann þrífst vel þótt ekki sé nema ein alin á milli plantna.