Félagið vekur áhuga fólks á sögu, menningu og nytjum rabarbarans og stendur að Rabarbarahátíðinni ár hvert.
Rabarbarafélagið var stofnað í Kvennaskólanum á Blönduósi 15. mars 2025. 26 manns mættu á fundinn og skráðu sig í félagið. Að auki skráðu 34 sig sem stofnfélaga á vefsíðu félagsins. Heimili og varnarþing félagsins er í Húnabyggð en félagar koma alls staðar að á landinu.
Tilgangur félagsins er að vekja áhuga fólks á sögu, menningu og nytjum rabarbarans og að skapa vettvang til þess. Stefnt er að því að félagið haldi árlega rabarbarahátíð til að skapa þennan grundvöll. Einhugur er innan félagsins um að hátíðin skuli áfram haldin í Gamla bænum á Blönduósi, en fyrsta hátíðin var haldin 2024.
Vertu með
Gakktu í Rabarbarafélagið
Allir sem hafa áhuga á rabarbara eru velkomnir. Félagið er líka með hóp á Facebook.

Núverandi stjórn
Elfa Þöll Grétarsdóttir
Formaður
Sunna Gestsdóttir
Gjaldkeri
Iðunn Vignisdóttir
Ritari
Björk Bjarnadóttir
Meðstjórnandi
Jón Freyr Jóhannsson
Meðstjórnandi
Edda Brynleifsdóttir
Varamaður
Berglind Björnsdóttir
Varamaður