Ræktunarleiðbeiningar

Rabarbari er fjölær jurt sem kemur upp ár eftir ár og þarfnast ekki mikillar umhirðu. Hann dreifir sér ekki sjálfur.

Þegar þú sérð rabarbaragarð finnst þér eins og hann hafi alltaf verið þarna, en hver og einn garður á sér merka sögu sem tengist mannanna höndum og óskum. Einhver setti garðinn upp, náði í hnausa og setti þá niður, nýtti rabarbarann og hugsaði um garðinn. Börnum var kennt að taka upp rabarbara rétt og vinna hann með foreldrum sínum, ömmum, öfum, frænkum og frændum.

Svo lengi sem settur er á hann húsdýraáburður að hausti eða vori mun garðurinn gefa hina bestu uppskeru, ár eftir ár.

Að útbúa rabarbaragarð

Veldu sólríkan stað. Best er að gera garðinn snemma að vori, þegar rabarbarinn er fullur af orku og er að byrja að kíkja upp úr jörðinni.

  1. Ef gras hylur jarðveginn þarf að stinga það burt, taka allar rætur og losa jarðveginn vel, jafnvel bæta mold í hann.
  2. Nóg er að setja niður fjóra hnausa til að byrja með. Garðurinn þarf að vera um það bil 2 metrar x 2 metrar.
  3. Hafðu um það bil tvö fet á milli hnausanna og grafðu góða holu fyrir hvern hnaus, um 50 cm djúpa, þannig að rótin komist vel ofan í jörðina.
  4. Settu um það bil tvær malarskóflur af húsdýraáburði í hverja holu og hrærðu vel saman við moldina. Best er að nota kindaskít, hrossaskít eða mykju.
  5. Mokaðu vel af mold upp að rótinni og láttu krúnu jurtarinnar standa aðeins upp úr jarðveginum.
  6. Vökvaðu hvern hnaus mjög vel. Miðaðu við um tvær 10 lítra garðkönnur á hnaus.
  7. Fylgstu með garðinum, vökvaðu af og til, reittu illgresi frá plöntunni og leyfðu henni að vaxa og dafna í eitt ár áður en þú tekur fyrstu uppskeru.

Uppskera

Ári eftir að garðurinn er útbúinn er í lagi að taka uppskeru. Að taka rabarbara upp rétt þýðir að hin hvíta pera eða fótur, hvíti hlutinn neðst á leggnum, fylgir með.

Kipptu leggnum upp þannig að þú haldir neðst við legginn, þar sem hann nemur við jarðveginn. Skerðu laufið af og leggðu það upp að hverjum hnaus. Blöðin eru óæt og full af oxalsýru, en í garðinum gefa þau rabarbaranum aftur næringu og halda illgresi frá.

Ef nýta á peruna til matargerðar skaltu taka leggina heim með perunni. Ef ekki, er hún skorin af í garðinum og sett aftur í jarðveginn.

Þegar heim er komið

Skolaðu leggina vel með köldu vatni. Skerðu þá í um það bil 1 cm þykka bita og vigtaðu 1 kg í poka til að frysta, þá er alltaf hægt að ganga að rabarbara vísum í frystinum. Einnig má strax útbúa sultu eða graut, baka rabarbaraköku eða setja í rabarbaravín. Gúgglið sem mest uppskriftir ykkur til gagns. Verði ykkur að góðu.

Björk Bjarnadóttir

Viska Schierbecks frá 1891

Leiðbeiningarnar í Garðyrkjukverinu eru enn í fullu gildi. Þar eru líka uppskriftir að graut og rabarbaravíni. Lesa kaflann →