Um ræktun á rabarbara, úr Garðyrkjukveri G. Schierbecks landlæknis frá árinu 1891.
Árið 1891 var gefið út lítið garðyrkjukver hér á landi sem fjallaði um ræktun matjurta á Íslandi. Það var skrifað af G. Schierbeck landlækni, gefið út í Reykjavík og prentað í Ísafoldarprentsmiðju. Á bls. 70–75 er fjallað um ræktun á rabarbara og textinn er settur hér fram óbreyttur.
Nýtið ykkur þessi fræði óspart í ræktun ykkar á rabarbara, við umhirðu garðsins, við uppskeru og vinnslu uppskerunnar. Leiðbeiningarnar eru skotheldar og munu gefa ykkur góða uppskeru í garðinum ykkar.
Kafli IV. Matjurtir þær, er lifað geta mörg ár
Ræktun
Rhabarber (rheum). Þessi planta þarf feita mold, sem sje stungin upp djúpt niður, og er bezt, að þar sje nokkur raki í jörðu. Rjettast er að leggja svo sem eina reku af mykju yfir hverja plöntu seint á hausti eða undir jól, og láta mykjuna liggja yfir henni allan veturinn. Það er bezti áburðurinn fyrir þá jurt; þó má og gjöra þetta undir vorið. Öllu illgrési verður bezt varið með því, að stinga upp moldina millum rhabarber-plantnanna á vorin, þegar þær eru komnar upp, og er þá áburðurinn grafinn lítið eitt niður í moldina.
Hinar beztu tegundir jurtar þessarar eru » Linnæus « « Queen Victoria«. Af « Queen Victoria« geta blaðleggirnir orðið allt að 2 pundum að þyngd hjer á landi. Enginn skyldi rækta hinar fornu, fölu aukategundir; eptirtekjan af þeim er svo sem engin í samanburði við eptirtekjuna af hinum rauðleitu veigamiklu tegundum.
Auka má rhabarber með því, að hluta sundur gamlar plöntur. Ef hluta skal plöntur í sundur, er bezt að taka þær heilar upp, en eigi stinga þær sundur að handahófi þar sem þær vaxa. Grafa skal stóra holu handa hverri plöntu, og láta lítið eitt af lausri mold í botninn, þar ofan á dálítið af gamalli mykju, og svo aptur ofan á hana lítið af mold, og þá er fyrst plantan gróðursett þar ofan á, en þó svo djúpt, að einungis sjá megi lítið eitt af hinum rauðu frjóhnöppum hennar upp úr moldinni. Jeg er vanur að hluta plönturnar sundur á haustin og geyma þær í jörðinni þangað til á vorin, að jeg gróðurset þær með hálfrar annarar álnar bili á millum þeirra. Hjer á landi getur Linnæus vel þrifizt, þótt eigi sje nema 1 alin á milli plantnanna; en aptur á móti má alls eigi vera minna bil á millum « Queen Victoria« en nemi hálfri annari alin.
Enginn skyldi reyna að auka jurt þessa með fræsáningu, sumpart sökum þess, að það veitir mjög örðugt, að halda hinum ungu plöntum lifandi allan veturinn, og sumpart vegna þess, að vjer eigum alls eigi víst, að fá góðar tegundir, þótt fræið sje sjálft tekið af góðri tegund.
Uppskera
Ef gróðursettar eru góðar og styrkar plöntur um vorið, má taka einstaka leggi samsumars í ágústmánuði;en eigi má þó veikla plönturnar um of. Næsta ár má taka talsvert meira. En það er enginn hægðarleikur að kveða á um það, hversu mörg ár jurtir þessar meiga standa á sama stað; en bezt verður að taka þær allar upp, hluta þær sundur og gróðursetja þær í nýstungna og djúpt pælda jörð,undir eins og eptirtekjan eptir (5-10) ár fer að minnka og leggirnar taka að grennast.
Beztir eru leggirnir hjer á landi venjulega í lok júnímánaðar og allan júlímánuð; en á nýgróðursettum rhabarber-plöntum verða leggirnir eigi rjettgóðir fyr en í ágústmánuði. Síðustu leggirnir eru eigi eins bragðgóðir og hinir snemmvaxnari, og þá á eigi heldur að taka, svo að plantan veiklist eigi of mjög seint á haustin. Rhabarber-leggina á eigi að skera af, heldur á að kippa þeim upp, því að allra-neðsti hluti þeirra er bragðbeztur, en verður eptir, ef leggirnir eru skornir af, og kemur þá að engum notum. Hina stóru blómaleggi skal aptur á móti skera af þegar í stað og þeirra verður vart, því að blaðleggirnir verða að öðrum kosti langt um færri.
Grautur
Af leggjunum er gjörður grautur, og er hann hinn ljúffengasti. Taka skal 3 pund af góðum og digrum blaðaleggjum, búta þá niður þvers yfir, eins og þeir eru með hýðinu, sjóða síðan í vatni, svo að verði hjer um bil rúmir 2 pottar, þá er það hefur soðið framt að hálfri stundu; er þá lögurinn síaður frá leggjunum og mældur, seyddur síðan aptur með litlu af kanel og sítronhýði og enn fremur þar saman við hjer um bil, pund af sykri. Undir eins og lögur þessi sýður, skal taka 8-10 lóð af kartöplumjöli eða samblandi af kartöplumjöli og sagomjöli,hræra það út í dálitlu af leginum, sem tekið hefur verið frá eptir síunina, og hella því svo saman við löginn; því næst skal sjóða allt saman nokkrar mínútur og síðan hella því í skál, og í henni er það látið kólna, og er það þá orðið að graut.
Rabarbaravín
Úr rhabarber má og gjöra ágætt vín, sem er því nær laust við allan vínanda, og bezti og ljúfengasti svaladrykkur. Þá er leggjunum er safnað, skal þurrka með tusku vandlega af þeim alla mold og sand, síðan búta þá í sundur-taka má af þeim hýðið, en það gjöri jeg eigi-og merja þá síðan í sundur í stampi með viðarhnall eða digurri spýtu. Sjeu leggirnir margir, verður að hafa eitthvert verkfæri, sem merji þá fljótar. Þá er leggirnir eru marðir vel í sundur, er lögurinn síaður frá í gegnum síupoka og látinn í hæfilega stórt trjeílát (kút). Í hvern pott lagarins skal blanda hálfu eða heilu pundi af sykri, eptir því, hversu sætan hver vill hafa löginn að honum þykir hann beztur, er hann hefur búið hann til nokkrum sinnum. Sumir hafa sykrið miklu minna, en jeg ætla, að enginn hafi reynt að láta meira sykur í, en 1 pund í hvern pott.
Lögurinn brýtur sig þá, ef sponsgatið er látið standa opið, og vatni bætt í ílátið, eptir því sem lögurinn minnkar smátt og smátt í kútnum, við það að leggja-leifarnar eru fleyttar ofan af upp um sponsgatið. Líta verður eptir ílátinu tvisvar á hverjum degi og fleyta ofan af leggjaleifarnar með spæni eða skeið. Þess verður að gæta, að ílátið sje alla-jafna fullt; því að annars verður eigi náð leggjaleifunum út um sponsgatið. Þessu skal halda áfram í þrjár vikur, að þeim liðnum er sponsið látið í, og kúturinn látinn standa hreifingarlaus nokkra mánuði;því næst má hella víninu á flöskur; er það þá optast óskírt eða eigi tært; að minnsta kosti hefur það verið svo hjá mjer, en það má gjöra eins tært eins og kristall, með því að sía það í gegnum kol og pappír. Það eru sjálfsagt til hundrað aðferðir að því, að búa til rhabarber-vín, en jeg skal eigi tala hjer um fleiri en þessa einu. Hún hefur sína galla, en einnig sína kosti, eins og allar aðrar. En er Íslendingar fara almennt að búa til vín þetta, þá er tími til, að skýra nákvæmar frá nokkrum að þessum mörgu og ýmislegu aðferðum.
Mælieiningar
Alin: um 62 cm, eða sem nemur frá olnboga fram á fingurgóma.
Danskt pund árið 1891: um 500 g.
Lítillega um G. Schierbeck
Hans Jacob George Schierbeck (24. febrúar 1847 – 7. september 1911) var danskur læknir sem starfaði í um áratug frá 1883 sem landlæknir á Íslandi. Hann vakti athygli lækna á mikilvægi aukins hreinlætis og gerði miklar rannsóknir á holdsveiki.
Einna kunnastur er hann þó á Íslandi fyrir framlag sitt til garðyrkjumála. Hann var ástríðufullur garðyrkjumaður frá æskuárum, kom sér upp fjölskrúðugum matjurtagarði við hús sitt í Reykjavík og varð fyrsti formaður Hins íslenska garðyrkjufélags, sem stofnað var árið 1885.
Silfurreynir Schierbecks í Fógetagarðinum í Reykjavík hefur lengi verið þekktur sem elsta tré Reykjavíkur.
Heimild: Wikipedia, 26. mars 2025.