Aðalfundur Rabarbarafélagsins

Fyrsti aðalfundur Rabarbarafélagsins var haldinn á Blönduósi sunnudaginn 11.maí en félagið var stofnað í mars 2025.

Kosin var ný stjórn en tveir gengu úr stjórn auk beggja varamanna stjórnar. Nýja stjórn skipa eftirfarandi einstaklingar.

Björk Bjarnadóttir, Elfa Þöll Grétarsdóttir, Iðunn Vignisdóttir, Jón Freyr Jóhannsson og Sunna Gestsdóttir. Varamenn eru Berglind Björnsdóttir og Edda Brynleifsdóttir.

Björk Bjarnadóttir flutti erindið Rabarbara rabb þegar hefðbundnum aðalfundarstörfum var lokið.

Nokkrar umræður voru á fundinum um það hvort áhugi væri á að halda rabarbarahátíð á þessu ári en illa gekk að virkja sjálfboðaliða af svæðinu í fyrra. Undirbúningur og framkvæmd hátíðar í fyrra var nær eingöngu af hálfu fólks sem ekki býr á svæðinu. Stjórn óskar eftir því að heimamenn taki virkari þátt í undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar í framtíðinni. Fundargestir voru almennt sammála um mikilvægi hátíðar og allir buðu fram krafta sína.

Niðurstaða fundarins var að halda hátíð í sumar og virkja heimafólk í skilgreind verkefni. Stjórn mun útbúa lista yfir stök verkefni og óska eftir fólki til að taka að sér. Þeir sem vilja leggja verkefninu lið geta senda póst á netfangið: rabarbarafestival@gmail.com

Stjórn þakkar öllum sem mættu og buðu fram aðstoð við næstu rabarbarahátíð sem verður haldin laugardaginn 27.júní 2026

Stjórn félagsins, frá vinstri Elfa, Sunna, Jón Freyr, Edda, Björk og Iðunn. Á myndina vantar Berglindi.
Snjóleug, Sonja og Sigríður ræða um næstu rabarbarahátíð.
Fundargestir hlusta áhugasamir á ritara lesa upp skýrslu stjórnar

Athugasemdir

Færðu inn athugasemd