Hjólað saman á rabarbarahátíð

Á Rabarbarahátíð verður boðið upp á notalegt og skemmtilegt samhjól frá gamla bænum á Blönduósi í kringum hið fallega Svínavatn. 

Samhjól (enska-social ride) er hjólaviðburður sem er öllum ókeypis og snýst um að hjóla saman ákveðna skilgreinda leið með það að markmiði að öllum líði vel og að það sé gaman.  

Hjólað verður saman frá gamla bænum upp Svínvetningabraut og að félagsheimilinu Dalsmynni þar sem kvenfélagskonur bera fram veitingar í boði rabarbarahátíðarinnar.

Þaðan verður hjólað hringinn í kringum vatnið og aftur niður á Blönduós inn í gleðina á rabarbarahátíð.

Hægt að sækja gpx af leið hér:

https://www.ferdamalastofa.is/…/iframe/svinavatnshringur

Leiðtogar samhjólsins verða Anna Linda Sigurgeirsdóttir og eiginmaður hennar Jón Þór Jónsson en hannhefur leitt samhjól rabarbarahátíðar frá upphafi.

Öll leiðin er 58 km og heildarhækkun 626m. Fyrir þá sem vilja meira er hægt að hjóla aðeins lengra og skreppa fram að Blöndulóni (130km) https://www.strava.com/routes/3218159945078080532

Vinsamlega skráið þátttöku ykkar hér: Skáning á samhjól 27. júní 2026 – Google Forms


Athugasemdir

Færðu inn athugasemd